Með ólíkindum hvað gerendur sleppa

alltaf ótrúlega vel.

Það er alveg sama hvar eineltið fer fram alltaf er það fórnarlambið sem þarf að kljást við málið.  Flytja úr bekk,skóla,bæjarfélagi og ég veit ekki hvað. 

Eftir sitja gerendur sem algerir sigurvegarar og fá ekki einu sinni skamm skamm fyrir vikið.

Ég trúi því að einelti sé hægt að stöðva með því einu að taka gerendur sama hverjir eða hverra manna þeir eru og gera hreinlega jafn lítið úr þeim eins og þeir hafa gert við fórnarlömb sín.

 Það sem þú vilt að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra. Er það þá ekki réttlátt að gerendur fái sömu meðferð og fórnarlömbin eða hvað???


mbl.is Eins og blaut tuska í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Kolbeinsson

Að öllu leyti þá gefur þessi dómur röng skilaboð. Það má hópast saman og misþyrma öðrum. Ef þú ert undir 18 þá er bara smá "skammskamm" og engar afleiðingar. Uppeldi virkar í gegnum orsök og afleiðingu. Gerðu gott og þú færð gott til baka, gerðu slæmt og útkoman er neikvæð. Hérna er það hundsað og þessir einstaklingar eru mjög ólíklegir til að draga nokkurn lærdóm út úr þessu.

Það sem verra er, önnur skítseyði í samfélaginu eru líkleg til að horfa á þennan dóm sem leyfi til að misþyrma öðrum.

Greyið stelpan hefði sennilega fengið meiri nálgun í málinu (náð að vinna úr málum, losna við martraðir o.þ.h.) með því að taka lögin í eigin hendur. Það eru hin skilaboðin úr þessu máli. Þeir sem verða fyrir alvarlegum árásum eiga greinilega frekar að fara að taka lögin í eigin hendur en að fara í gegn um réttarkerfið.

En það passar svosem við önnur ofbeldisverk eins og t.d. nauðgun. Á Íslandi komast þau mál yfirleitt ekkert inn í dómskerfið og þolendur verða bara að sætta sig við að öllum er skítsama. Sama með barnaperrana.

Dómstólar vilja greinilega ekkert frekar en að þolendur taki lögin í eigin hendur. 

Ari Kolbeinsson, 14.12.2009 kl. 18:23

2 identicon

"Ég trúi því að einelti sé hægt að stöðva með því einu að taka gerendur sama hverjir eða hverra manna þeir eru og gera hreinlega jafn lítið úr þeim eins og þeir hafa gert við fórnarlömb sín"

Þarna ert þú komin á nákvæmlega sama barnalega plan og gerendur í þessu máli. Ertu semsagt að segja að það eigi að taka ákærðu og berja til óbóta?

Daníel Þór (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 18:35

3 Smámynd: Anepo

Ég held að við þurfum að berja dómarann líka. til að sýna þeim hversu slæmt þetta er.

Og ég held að ég verði að  hvetja þá sem lenda í þessu til að lemja fólkið til að láta gerendur finna fyrir því

Anepo, 14.12.2009 kl. 18:41

4 identicon

sammála þessu. bara lemja dómarana. þeir hafa örugglega ekki kynnt sér málið neitt, ekki hlustað á nein vitni og bara hlutdrægir alveg frá upphafi. eiginlega ættum viðbara að láta Hrönn dæma í málinu. hún virðist hafa mest vit á þessu.

skellur (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 19:07

5 identicon

Berja gerendurnar í spað og berja dómarann (dómarana) hver sem dæmir svona er ekkert annað en 100% meðvirkur og hefði allt eins getað tekið þátt í barsmíðunum.

Daníel Þór, ef dómskerfið virkar ekki og verndar ekki þolendur, hver á þá að gera það?

Bjarni (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband