Það er ekki eins og þessir menn þurfi að hafa áhyggjur

Ekki er þessi miður frábæra Ríkisstjórn að gera eitthvað frekar en fyrri stjórnir að ná í rassgatið á þessu liði.

Það virðist vera mottó Ríkisstjórnarinnar að ráðast á okkur litla manninn og leyfa þessum öpum að valsa um með aurana sína og leggja fram ákærur á hendur Ríkinu út af einhverjum að þessum milljónum sem þeir segjast ekki eiga.

Held það væri nær að sækja peningana til þessa liðs frekar en okkar sem getum ekki borgað meira.


mbl.is Segir að Glitnir sé að höfða tvö mál vegna sömu sakargifta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með ólíkindum hvað gerendur sleppa

alltaf ótrúlega vel.

Það er alveg sama hvar eineltið fer fram alltaf er það fórnarlambið sem þarf að kljást við málið.  Flytja úr bekk,skóla,bæjarfélagi og ég veit ekki hvað. 

Eftir sitja gerendur sem algerir sigurvegarar og fá ekki einu sinni skamm skamm fyrir vikið.

Ég trúi því að einelti sé hægt að stöðva með því einu að taka gerendur sama hverjir eða hverra manna þeir eru og gera hreinlega jafn lítið úr þeim eins og þeir hafa gert við fórnarlömb sín.

 Það sem þú vilt að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra. Er það þá ekki réttlátt að gerendur fái sömu meðferð og fórnarlömbin eða hvað???


mbl.is Eins og blaut tuska í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húrra ein jákvæð frétt

Örugglega eitt að mjög fáum fyrirtækjum landsins sem geta gefið slíkar ölmusur nú til dags.

Næstu jól verða örugglega engin fyrirtæki hér nema í ríkiseigu þá og ekki munu þau gefa eitt né neitt.

Gaman að þessu


mbl.is Gefur tvær og hálfa milljón kr. til hjálparstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattahátíðin mikla

Ég verð nú að segja að mér þykir þetta farið að ganga ansi hreint langt hjá ríkisstjórninni að leggja skatt á skatt ofan á hvern einasta þegn okkar litla lands.

Við getum ekki endalaust hækkað útgjöld okkar þar sem erfiðara er að lifa af hvern mánuð og þetta versnar bara.

Vissulega þarf að hækka einhver gjöld það vitum við öll. En að auka álögur á fólk sem rétt nær endum saman núna er ekki leiðin.

Áfengisskattur:Fólk fer bara aðrar leiðir að ná sér í áfengi= vínbúðir hætta ein af annarri.

Sykurskattur: fólk hættir að drekka gos eða minnkar það verulega= Gosframleiðendur fara á hausinn. = minni peningur í ríkiskassann.

Bensínhækkun: fólk keyrir minna= minna að gera hjá olíufyrirtækjum=bensínstöðvar lokast ein af annarri.= minni peningur í ríkiskassann

Launaskattur hækkar= fólk hættir að vinna yfirvinnu eða má það ekki= minni peningur í ríkiskassann.

Hátekjuskattur: fólk með háar tekjur greiðir mun hærri skatt en lágtekjufólkið sama hvernig það er reiknað.

Rafmagns og hitaskattur:við verðum að greiða hann enda lífsnauðsynlegt að kynda húsin, en hverjum er ekki sama þótt að ein og ein fjölskylda frjósi í hel af því að þær gátu ekki greitt rafmagns-og hitareikninginn????

 Orkuskattur á stóriðjuna= uppsagnir og í framhaldi af því engin atvinnustarfsemi að ráði= minni peningur í ríkiskassann.

 Niðurskurður í hámarki í mennta og heilbrigðisgeiranum=færri börn í mat,af því að m og p hafa ekki efni á matnum,minni kennsla,starfsfólk með minni metnað,færri stuðningsaðilar þó að vandamálum í skólum fjölgi.= aukinn kostnaður fyrir ríkið fleiri þurfa á sérfræðiaðstoð að halda.

Svona mætti lengi telja.

Ég er þó aðeins sammála ríkisstjórn með fjármagnstekjuskattinn ef það er raunin að fólk kalli allt fjármagnstekjur og liggi inni með mikið fjármagn.

 Hvernig er hægt að spara á fleiri stöðum en skera allt undan almennum borgurum landsins?

Er kannski hægt að leggja niður forsetaembættið? Ekki er hann að gera mikið gagn snar vinstri sinnaður sá.

Er hægt að fækka ráðuneytunum enn frekar?

Er hægt að sleppa því að ráðherrar okkar litla lands hafi einkabílstjóra?

Er hægt að láta ráðherrana keyra um á ódýrari bílum en nú er?

Er hægt að láta alla greiða leikskólagjöld í stað þess að hafa frítt bara fyrir fimm ára?

Er hægt að láta alla greiða fyrir heilbrigðisþjónustu þó ekki nema smáupphæð eins og var?

Er hægt að gera fólki kleift að stofna fyrirtæki án þess að fyrirtækið fari á hausinn sama ár með því að styðja við atvinnumöguleika í stað þess að drepa þá niður?

Er hægt að nýta orkuauðlindir landsins og selja orkuna út?

Er hægt að nýta okkar fallega land og rukka erlenda ferðamenn inn á áhugaverða staði á Íslandi til að skoða?

Er hægt að lækka tolla til að Íslendingar gætu mögulega verslað hér heima?

Er hægt að verða sjálfbær þjóð og hætta að láta sig dreyma um útrás erlendis? Vera bara við,nóg eigum við af auðlindum sem við getum lifað af.

Er hægt að leyfa garðyrkjubændum að greiða lægri raforkukostnað til að þeir geti ræktað meira og jafnvel farið í annarskonar ræktun á ávöxtum og öðru slíku? Þá þyrftum við ekki að flytja inn grænmeti og ávexti= aukin atvinna hérlendis.

Er hægt að hugsa svona:  Ef vara,þjónusta er ódýrari þá hafa fleiri efni á að versla eða nýta sér þjónustuna sem hefur þann kost að meiri peningur kemur í ríkiskassann.

Allir draga saman seglin í svona árferði og miklu hraðar drögum við saman þegar greiðslubyrgðin er orðin svo rosaleg. Ef gjöldin væru lægri myndi ég halda að fleiri sæju um að rétta kútinn af í stað þess sem nú stefnir í að það mun enda á örfárra höndum að borga brúsann af öllu heila klabbinu.

Er hægt að fá íslenska þjóð til að hugsa svona: Ódýrara= fleiri Dýrara= færri

Ég spyr????????????????


Vísa / í skólanum, í skólanum.

Í kreppunni, í kreppunni

er dapurlegt að vera

við lærum þar, að borga skatt

sem að engan hefur hatt

í kreppunni, í kreppunni 

er dapurlegt að vera.

 

Í kreppunni, í kreppunni

við fáum öll að gjalda

fyrir mistök annarra

sem skulda fólki þjóðanna.

Í kreppunni, í kreppunni 

er ömurlegt að vera.

 

Í skattaborg, í skattaborg

við þurfum nú að lifa.

Við borgum endalausan skatt

svo að ríkið eigi allt.

Í skattaborg í skattaborg 

við þurfum nú að lifa.

 

'O ríkisstjórn ó ríkisstjórn

hvers eigum við að gjalda?

Við fórum ekki hamförum

í öllum þessum innkaupum

Ó ríkisstjórn ó ríkisstjórn

því eigum við að borga?????


Hvað með nútíma símatækni??

Væri það ekki sparnaður að fara á símafund í stað þess að eyða milljón eða tveim í ferðina fyrir skattmann??? Hvar eru mótmælendur núna?
mbl.is Steingrímur til Tyrklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég missti mig í gær

þegar Helgi Seljan tók viðtal við Steingrím J. í Kastljósi í gærkvöldi.  Ég trúi því ekki að eina leiðin til að ná þjóðinni úr þessari skuldasúpu sé að leggja meiri og meiri álögur á allt sem hugsast getur.

Ég spyr eins og Helgi:  Heldur núverandi ríkisstjórn að við sem á skeri þessu búum getum endalaust bætt við okkur álögum og samt alltaf haldið áfram að borga af húsum okkar og fæða okkur sjálf, börnin og klæða? Ég er ein af þeim sem er svo lánsöm að vera bara með venjulegt íslenskt húsnæðislán og eitt lífeyrissjóðslán og annað ekki.  Samt finn ég verulega fyrir öllum þeim hækkunum sem fram fara.  Meðal annars í matvörubúðinni sem Steingrímur benti svo skemmtilega á í gær að matvaran hafi nú ekki hækkað eða alla vega ekki verið sérstaklega skattlögð. Af hverju er það þá þannig í búðinni að maður þarf að staldra við hvern einasta hlut sem vantar á heimilið og hugsa: er þetta alveg nauðsynlegt að kaupa. Þarf ég að kaupa mjólk núna eða ætti ég að bjóða upp á vatn og kaupa mjólk næst??  Bara nauðsynjahlutir eins og klósettpappír,eldhúsrúllur,dömubindi,bleyjur og miklu fleira hefur hækkað svo óstjórnlega að maður tímir varla að kaupa þá.  Svo segir hann að matur og nauðsynjar muni ekki hækka.  Á hvaða plánetu lifir þú Steingrímur J Sigfússon????????

Ég veit að ég mun ekki geta borgað mikið hærri gjöld án þess að fara þá í yfirdrátt og fá dráttarvexti á lánin tvö og enda svo að missa húsið. Hvað þá þeir sem skulda meira og hafa jafnvel líka misst vinnuna því fyrirtækin standa ekki lengur heldur. 'Eg veit ekki og kannski skil ekki en eins og Steingrímur talaði í gær þá trúi ég því að markmið ríkisstjórnarinnar er ekki að setja skjalborg um þjóðina fyrr en allir eru eignalausir og þá fyrst getur RÍKIÐ stjórnað okkur öllum eins og brúðum.

Þegar hann var svo spurður um sendiherrastöðurnar, nei þá þurfti það meiri tíma og aðlögun eins og í fækkun ráðherrastóla en það þurfti enga aðlögun á heilbrigðis og menntakerfið í niðurskurðinum þar!Enda er þar ekki um annað að ræða en framtíðina og heilbrigðisstéttin, hva við munum hvort sem er ekki eiga pening til að fara til læknis enda verða engir læknar eftir, nei ég segi svona.

 


Breskur almenningur þarf ekki að borga bara

íslenskur almenningur í staðinn.  Það er auðvitað miklu betra fyrir Bretana og hverju skiptum við hér á klakanum??????  Ekki neinu.
mbl.is Þakkaði Brown fyrir að bjarga Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er þetta hægt....

að fremja svona ódæði og það á sinni fjölskyldu.  Mannskepnan er óútreiknanleg, hvað ætli fari um hugann á fólki sem gerir svona lagað??
mbl.is Myrti konu sína og fimm ung börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

her er stud

langt sidan eg hef bloggad ha

 

Nu erum vid i Florida fjolskyldan og hofum tad gott i solinni og hitanum.  her er engin rigning og ekkert rok bara sol og hiti.

 Vid erum buin ad gera margt og mikid og allt jafn gaman.  Vid forum i Disney og saelll eigum vid ad raeda tad hvaa tad er dyrt?? uuuu nei sleppum tvi.

Tad er sorglet ad sja hvad haustin geta verid leidinleg a islandi med ollu sinu roki og rigingu alla daga vikum saman.

En hvad um tad gaman ad sja hve margir rifast her a blogginu ut af einhverjum skodunum einstaklinga her og tar.  Gaman ad fylgjast med tvi og serstaklega hva riddarinn naer ad aesa folk upp med einskaerri stridni tad er bara fyndid.

 

jaja bid ad heilsa rigingunni en ekki rokinu

 

kv. Oskin


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband